Stofnendur

Stofnendurnir Bjarni Þorsteinsson og Markús Ívarsson

Stofnun Héðins miðast við 1. nóvember 1922 er þeir Bjarni Þorsteinsson og Markús Ívarsson tveir ungir og áhugasamir vélfræðingar, keyptu Járnsmiðju Bjarnhéðins Jónssonar af ekkju Bjarnhéðins, og hófu rekstur vélsmiðju. Bjarni var vélfræðingur, sonur Þorsteins Jónssonar járnsmiðs í Reykjavík og Markús Ívarsson, var vélstjóri ættaður frá Vorsabæjarhjáleigu í Flóa.

Þegar þeir Bjarni og Markús keyptu járnsmiðju Bjarnhéðins að Aðalstræti 6b hafði starfsemi legið niðri í smiðjunni um þriggja ára skeið. Í virðingarskyni við hinn látna járnsmið gáfu þeir fyrirtæki sínu nafn hans – vélsmiðjan Héðinn.
Fyrsta verk þeirra félaga var að byggja nýja eldsmiðju og tvöfalda húsrýmið, en járniðnaðurinn spannst að verulegu leyti útfrá eldsmíði. Öll „suða” á járni og málmum var nær eingöngu framkvæmd i eldi, sem og flest annað járnsmíðakyns.
Þrátt fyrir takmörkuð húsakynni og fábrotnar vélar og tæki þótti þegar í upphafi myndarbragur á rekstri og framkvæmdum Héðinsmanna. Enda varð vöxtur fyrirtækisins ævintýralegur.

Nýsmíði – handverkfæri, vélar og verksmiðjur
Á fyrstu áratugum Héðins vakti athygli nýsmíði vélsmiðjunnar á mörgum sviðum auk vandasamra viðgerða. Þá voru nefndir til sögunnar olíugeymar, járnhúsgögn, hjólbörur úr járni, lýsisvinnslutæki, síldar- og fiskimjölsverksmiðjur, hraðfrystitæki, olíukyndingartæki, tannhjóla- og miðflóttadælur, lofthitarar, heyblásarar, hraðabreytar, loftræstibúnaður, snigildrif, vélknúin línuspil, þvottavélar og fyrir iðnsýninguna 1952 fyrstu díselvél, sem smíðuð hafði verið á Íslandi.

Bjarni Þorsteinsson
Bjarni fæddist í Reykjavík árið 1897 og að afloknu námi hjá föður sínum fór hann til Danmerkur og stundaði þar nám í vélaverkfræði og vann um tveggja ára skeið í hinum ýmsu deildum Flydedokken. Árið 1922 keypti hann ásamt Markúsi Ivarssyni smiðju Bjarnhéðins Jónssonar og stofnuðu þeir saman Vélsmiðjuna Héðinn. Bjarni féll frá fyrir aldur fram, 9. des 1938, á 42. aldursári. Í fögrum eftirmælum um hann var sagt að hann hefði litið á það sem hlutverk sitt að skapa atvinnu í landinu. Haft var eftir honum: „Hlutverk mitt er, að vekja áhuga manna á því, að reisa fyrirtæki, til að hagnýta hráefni þau, sem til eru í landinu”, — og beindist hugur hans aðallega að hagnýtingu sjávarafurða í landinu. Eftir hans dag sat ekkja hans Jóhanna Þorsteinsson, fædd Olsen lengi í stjórn fyrirtækisins og Ásgeir Bjarnason sonur þeirra átti einnig eftir að vinna í Héðni sem vélfræðingur og stjórnandi.

Hópmynd við höfuðstöðvar Héðins sem risu við Seljaveg 2. Byggingin hefur alla tíð verið kennd við fyrirtækið.

Markús Ívarsson
Markús Kristinn Ívarsson fæddist 8. sept. 1884. Hann nam járnsmíði á Eyrarbakka og vélfræði við stýrimannaskólann í Reykjavík 1912—’13. Að loknu prófi stundaði hann vélgæzlu á togurum og flutningaskipum til ársins 1920, en hóf þá vélsmíði í landi. Þessi bakgrunnur hefur áreiðanlega skipt miklu við þróun Héðins. Um langt skeið hafði íslenskur sjávarútvegur verið háður erlendum verkstæðum, svo að nálega allt þurfti að sækja til erlendra aðila. Fyrir atbeina Markúsar og þeirra Héðinsmanna var ráðin bót á þessu. Fyrirtækið lagði áherslu á þjónustu við sjávarútveginn, bæði við vaxandi tæknistig og vélvæðingu skipaflotans sem og með gerð ýmissa nýrra véla og tækja fyrir fiskiðnaðinn í landinu.
Markús var vel tengdur og vinmargur með eindæmum. Viðgerðir fyrirtækisins og verklægni stjórnandans kom sér líka oft vel og aflaði honum margra vina meðal sjómanna, ekki síst báru vélstjórarnir mikið traust til hans. Oftsinnis einkum í byrjun vertíða var unnið á nóttu í járnsmiðjunni til að þjóna skipunum. Nokkrum sinnum hafði Markús forustu um björgun strandaðra skipa og verðmæta úr ströndum, verkefni sem áttu vel við skapgerð hans, stórhug og athafnasemi.
Kvæntur var Markús æskuástinni – Kristínu Andrésdóttur (1885-1969) frá Meðalholtum í Gaulverjabæjarhreppi, sem einnig sat í stjórn Héðins að bónda sínum látnum og tók þátt í menningarstarfsemi einsog Markús. Hann var annálaður listavinur og safnari þannig að margir listamenn nutu góðs af.

Eftir andlát Bjarna Þorsteinssonar stjórnaði Markús Ívarsson fyrirtækinu einn, en 1941 var því breytt í hlutafélag og Sveinn Guðmundsson vélfræðingur, tengdasonur Markúsar, var ráðinn forstjóri.
Markús Ívarsson féll frá 23. ágúst 1943, en þá var fyrirtækið orðið eitt af stærstu og þekktustu iðnfyrirtækjum landsins. Dætur þeirra Kristínar voru: Guðrún Markúsdóttir (1916-1992), Kristín Helga Markúsdóttir (1918-1971) og Sigrún Markúsdóttir Möller (1921-2003)

Skjótráður verkmaður
Margar sögur voru sagðar af hugvitssemi Markúsar Ívarssonar og skjótum viðbrögðum. Einhverju sinni „ voru þeir að vinna saman inni í katli í skipi, Markús og Kjartan Jónsson. Kjartan Jónsson vann samfleytt í Héðni í 54 ár, eða frá árinu 1924… Þannig háttaði til að Markús þurfti að smyrja upp fyrir sig í göt sem þar voru. Kom þá í Ijós, að þeir félagar höfðu einungis haft meðferðis smurkönnu, sem hægt var að hella úr en ekki sprauta. Var nú úr vöndu að ráða. „Hvernig í helvítinu eigum að fara að við að koma þessu í?”, spurði Markús. „Tja, ég veit ekki,” sagði Kjartan og var ráðalaus. Án þess að hugsa sig um, greip Markús smurkönnuna, fulla af olíu og saup á. Spýtti hann síðan olíunni upp fyrir sig og í götin í mjórri bunu. Var hann eins og oft áður fljótari að framkvæma en hugsa, en ekki þótti honum þetta neitt tiltölumál og miklum mun fljótlegra en að hlaupa eftir sprautukönnunni upp í smiðju.“ (5)
Markús fór flestra ferða sinna á reiðhjóli um Reykjavík. Þess minntust nágrannar hans að hafa séð hann iðulega gangandi með hjólið sitt, reiðandi málverk sem hann lagði á fótstigið, gjarnan spjallandi við kunningja um leið og þeir virtu fyrir sér listaverkið.

Listamaður í járnsmiðsham
Markús Ívarsson var ekki einungis ástríðufullur listaðdáandi heldur og vinur og velgerðarmaður fjölmargra listamanna – og mikilvægur menningarlífinu sem naut smávægilegs stuðnings opinberra aðilja á ævidögum hans. Þeim mun mikilvægari var sá stuðningur sem hann veitti listum og listamönnum.

Mörgum fannst líka sem draumar hans sjálfs hefðu staðið til þess að vera listamaður, þótt vélsmiðjan hefði haft betur. Í minningarljóði Grétars Fells sagði (2):

Og því mun listamannslundin gljúpa
við leiði þitt i anda krjúpa,
og þakka góðhug, þakka mildi
þess, er málarans drauma skildi.

En sjálfur muntu sjá og finna
nýtt svigrúm listadrauma þinna,
og hrifinn nýja heimsmynd skoða,
hjúpaða sól og morgunroða.

Minningarsjóður með nafni Markúsar
Nokkrir vinir Markúsar ákváðu að heiðra minningu hans með þvi að stofna minningarsjóð. Í fréttatilkynningu sagði meðal annars: „ Markús Ívarsson var mikill vinur lista og listamanna. Hann hafði um mörg undanfarin ár keypt mjög mikið af allskonar listaverkum og hafði hann hug á að halda því starfi áfram, ef honum entist aldur. Myndlistasafn hans mun einsdæmi hér á landi, hjálpsemi og góðvild hans gagnvart listamönnum fágæt. Þeim, sem standa að sjóðsstofnun þessari, fannst því ekki hægt að minnast þessa merkilega listavinar betur, en að reyna að halda áfram starfi hans og kaupa listaverk, en tryggja um leið, að verkin geymist á öruggum stað. Úr væntanlegum sjóði verður árlega varið nokkurri upphæð til kaupa á listaverkum. Verk þau, sem þannig eru keypt, verða afhent Málverkasafni ríkisins til fullrar eignar…“
Minna varð úr efndum heldur en hugur stefndi til og sjóðurinn sofnaði útaf eftir nokkur ár. En þegar þegar Listasafn Íslands var opnað almenningi sumarið 1951, gáfu ekkja Markúsar og dætur þeirra þrjár fjölmörg listaverk úr safni Markúsar, eða um sextíu myndir eftir tuttugu málara gerðar á árunum 1915—1943. Meðal þessara listaverka eru mörg af djásnum Listasafnsins sem oft hafa komið til sýninga, og safnið í heild hefur verið sýnt amk tvisvar, 1966 og 1977. (3)

Sýning til minningar um Markús
Á lýðveldisárinu 1944 var haldin sýning á 156 listaverkum til minningar um Markús sem látist hafði ári fyrr. Myndirnar voru eftir: Ásgrím Jónsson, Ásmund Sveinsson, Barböru Árnason, Brynjólf Þórðarson, Einar Jónsson, Eyjólf J. Eyfells, Finn Jónsson, Gunnlaug Blöndal, Guðmund Thorsteinsson, Gunnlaug Scheving, Jóhannes S. Kjarval, Jón Engilberts, Jón Stefánsson, Snorra Arinbjarnar, Þórarin B. Þorláksson, Þorvald Skúlason en Markús átti líka verk eftir marga fleiri íslenska listamenn.

  1. Lesbók Morgunblaðsins – 41. tölublað -1981: 22
  2. Vísir – 198. tölublað (01.09.1943): 2 (úr minningarljóði). Lesbók Morgunblaðsins – 41. tölublað – Jólablað (24.12.1981): 10-11, 21-23 ( Víkingur til starfa – og fágætur menningarmaður. Um Markús Ívarsson í Héðni eftir Kristínu Sveinsdóttur)
  3. Lesbók Morgunblaðsins – 41. tölublað – Jólablað (24.12.1981): 10-11, 21-23 ( Víkingur til starfa – og fágætur menningarmaður. Um Markús Ívarsson í Héðni eftir Kristínu Sveinsdóttur)
Úr smiðju Héðins við Gjáhellu. Ljósmynd Páll Stefánsson.

Share This Post!

Sendu okkur línu

Fylltu út formið

Takk fyrir að hafa samband við Héðinn. Við munum hafa samband fljótlega.
Því miður kom upp villa þegar þú sendir skilaboðin. Vinsamlegast reyndu aftur síðar.